Sunday, 8 July 2007
A day at the beach
Saturday, 7 July 2007
Finally
Annars vil ég óska föður mínum til hamingju með afmælið í dag. Góður dagur 07.07.2007. Trilljónir að gifta sig og í Sidney verða LIVE EARTH tónleikar t.d. haldnir. Svo pabbi, þú verður að gera eitthvað spennandi.
Ég var að frétta að það flytja inn tvær franskar stelpur til mín þann 17. júlí. Ég verð því að reyna að troða mér eitthvað á unglingana hérna í nágrenninu, eða bara lesa og horfa á tv. hehehe Sofnaði kl. 9 í gærkvöldi, enda vöknuð kl. 6 í morgun. Fór út að hlaupa hálf 8 og því í banastuði. Ætla í búðaleiðangur núna, ætla frekar fleiri ferðir en kaupa of mikið inn.
Hey ég heiti habbainaustralia á skype fyrir ykkur sem hafa :-)
Cheers
Nu har jeg enlig fået det rigtige stik på computeren og derfor i kontakt med omverden igen. Utroligt hvor afhængig man er blevet af nettet.
Fik at vide i morges at der flytter ind to franske piger den 17. juli, så jeg kan måske ruske op i min forfalne fransk ;-)
Så jeg må tilmed at komme ud og se om ikke jeg kan finde nogen at hænge ud med her i weekenden. Orientation starter først på tirsdag, men hvis ikke det lykkes har jeg computeren, bøger og tv. Jeg er så godt som kommet over den store forskel på tiden. Sov 11 timer i førrige nat, og faldt allerede i søvn kl. 9 i går, så i aften må jeg holde mig vågen.
Thursday, 5 July 2007
Það gekk líka vel að finna Express Coach á Standsted og ég var komin á Heathrow í góðum tíma, og þá fóru hlutirnir að gerast!!! Allstaðar raðir, meira að segja í lifturnar og svo heljarinnar göngutúr til að komast að réttu „gate-i“. Nú mér tókst að taka með mér aaaaðeins of mikið af dóti, og ensku dömunum leist ekkert á blikuna. Þeim fannst þessi auka 27 kg. sem ég var með eitthvað yfirdrifin hjá mér, ég skildi svosem ekkert í því. Eigum við konur ekki að standa saman? Maður verður jú að hafa þetta nauðsynlegasta með þegar að maður ferðast hálfan hnöttinn! Nú ég varð því að senda eina töskuna, því vinkonan ætlaði að rukka mig 650 pund fyrir aukakílóin. Þá fór allt á fullt hjá mér með að taka úr einni tösku og setja í aðra og guð má vita hvað ég stóð lengi, aaaalein og ráðvilt með nærur, pils, buxur og hvað veit ég útum allt... Ekki batnaði það þegar að ég þurfti að vera með símanúmer í Ástralíu til að geta sent töskuna. „Hva! Ég þekki engan í Ástralíu....nei á enga vini þar“, svo þá var að hringja í ofvæni til mömmu gömlu sem eftir nokkuð hark við gmail og netið og nokkur símtöl tókst að redda málinu og taskan er því komin í flug. Kemur víst eftir ca. viku. Ég veit svo eiginlega varla hvað ég er með mér núna, varð alveg kolringluð í þessu töskuveseni.
Flugið með Emirates til Dubai var eins þægilegt og það gat verið. Besti flugvélamatur sem ég hef smakkað, og sér tv skjár þar sem hægt var að velja milli ótal mynda, tölvuleikja etc. Það var líka frábært að fá upplýsingar um næsta flug á skjánum og sleppa við panik við að leita að Brisbane „gate-inu“. Það var þokkalega groovie að fljúga yfir Dubai, og alveg greinilegt að maður var komin í allt annan heim. Allt var gult, sandur útum allt, öll hús ferköntuð með flötum þökum. Það var lítið af gróðri og sumstaðar var eins og vegir, hús og gróður væri að „drukna“ í sandinum. Fríkað að sjá þetta.
Ég skellti svo í mig hálfri svefnpillu í byrjun flugsins til Singapore. Hún virkaði í 3 tíma svo ég var bara nokkuð brött við komuna til Singapore. Þar var okkur hent út, til að tölta um í 30 mín, og svo inn aftur og rúmlega 6 tíma flug til Brisbane.
Min rejse startede allerede eventyrligt... Alt gik godt fra Island, måtte dog betale for 8 kg i overvægt. Det gik glimrende med at finde bus fra Standsted til Heathrow og jeg var der i god tid, heldigvis, fordi de engelske damer bryd sig ikke om de ca. 27 ekstra kg jeg hvade med! Man skulle tro at vi kvinder ville stå sammen, men nej, engan et sødt smil virkede. De ville tage 650 pund så jeg måtte finde andre veje og den eneste var at sende tasken for sig selv. OOOOg guuud, det havde jeg jo ikke pakket til, så jeg plantede mig i et hjørne og siden fløj der med underbukser og nederdele, sandeler og gud må vide, og til sidst vidste jeg næsten ikke hvad jeg havde pakked hvor! Næste sjok fik jeg da jeg skulle skaffe telefon nummer i Australien til at kunne sende tasken. ”Buhuuu men jeg kender ikke nogen der…” og efter par opkaldt og kamp med gmail og internettet lykkedes det mor at skaffe nummer hos kollegiet (hvor jeg skal bo) og tasken blev sendt af sted efter alt. Den kommer vist om en uge.
Flyveturen med Emirates var nok lige så komfi som den kunne være. God mad og eget tv, hvor man kunne vælge mellem mange film og spil etc. Lige noget for mig ;-) Det var utroligt at flyve over Dubai. Virkelig en anden verden der. Alt var gult og sand alle vegne. Firkantede hus med flade tage, og nogle af dem samt planter og veje var bogstaveligt ved at "drukne" i sanden.
Tuesday, 3 July 2007
Goodbye everyone
Monday, 25 June 2007
Beautiful Iceland
Derefter tog jeg over til næste amt Húnavatnssýsla, hvor min mor voksede op og der skyndte jeg mig til at låne ordenligt arbejdstøj så jeg kunne hjælpe til med køerne. Mmmmm det duftede så godt og det var rigtig dejligt at være med til igen. Så besøgte vi flere at vores familie inden at vi tog tilbage til Reykjavik igen.
Weekenden har jeg også brugt med familien. Denne gang min bror og Co. Viktor min ældste nivø har koncureret i atletik og Arnór, ham i midten, har været til fodboldturnering hele weekenden. Så sluttede vi det hele med grillfest. Faktisk gik jeg, mor og mand på Esjan igen, men denne gang gik vi hele vejen på toppeb. Det var dejligt vejr men blæste meget, så meget at nogle gange var vi ved at blæse ned igen.. Men udsigten var SMUK. Kig på billeder senere.
Glæder mig til at høre nyt fra DK.
Fallega Ísland
Á mánudaginn var fór ég í frábæra sveitaferð. Ég, pabbi og Anna Inga keyrðum í sól og blíðu alla leiðina á Strandir þar sem að pabbi ólst upp. Amma sem býr núna á Hólmavík kom með okkur í Bjarnafjörðinn. Sú gamla á 95. ári og alveg eiturhress. Veðrið var alveg einstaklega gott sem gerir alltaf svo mikið fyrir svona ferðir. Þá er hægt að vera mikið úti. Ég skellti mér strax "upp á brún" eins og þeir segja í Bjarnafirðinum. Útsýnið frábært og frekar töff að sjá þokunua læðast inn dalinn. Síðan nutum við útiverunnar með því að raka hey, fara í göngutúr, í sund og náttúrlega heita laug á Laugarhól. Við grilluðum og borðuðum úti sem er frekar sjaldgæft að hægt sé vegna veðurs. Ég fór í frábæran túr í Kajak niður í Bjarnarfjarðará og skellti mér svo túr í heita pottinn á Svanshóli á eftir. Meiriháttar túr.
Pabbi keyrði mig svo til Hvammstanga þar sem að ég hitti mömmu og við héldum áfram út á Vatnsnesið þar sem að mamma ólst upp. Þar skellti ég mér í skítagallann alveg um leið og fékk að hjálpa til í fjósinu. MMmmmmm elska fjósalyktina, eða "elska skít" eins og í Dalalíf. Enda orðinn skítug upp fyrir haus eftir korter. Rosalega góðir dagar sem hefðu mátt vera fleiri.
Í gær löbbuðum við mamma og Eiríkur á Esjuna. Útsýnið var frábært. Sólin skein en það var ferlegt rok, og vorum við nú alveg á því að það hafi tafið okkur að minnsta kosti um klukkutíma....enda rúma 2 tíma á toppinn ;-) Þrátt fyrir vissa þreytu tókst okkur að halda góða grillveislu fyrir familiuna um kvöldið. Restin af helginni hefur svo farið í að horfa á litlu sætu frændur mína keppa í frjálsum og fótbolta, og kvöldverð á Tapas í góðum félagsskap Versló-stelpnanna.